| Algengustu þykktir | vrnr.: XPS50-32F og XPS100-32F | ||||||||||||||||||||
Hér er um að ræða XPS-einangrun, sem er oft nefnt þrýstiplast. XPS hefur mun meira þrýstiþol og betri rakamótstöðu en hefðbundið EPS, en er talsvert dýrara fyrir vikið. Einnig fáanlegt í öðrum þykktum en nefndar eru hér að ofan. Helstu notkunarstaðir eru ofan á flöt þök, utan á sökkla og undir hellur á plönum og svölum, þar sem afar miklar kröfur eru gerðar til þrýstiþols og rakamótstöðu. |
![]() ![]() |


