Stefnur
Gæðastefna
Stefna Tempru ehf. er að hlíta öllum þeim kröfum sem til starfseminnar eru gerðar. Við viljum vera í fararbroddi á okkar sviði er varðar öryggis-, umhverfis- og gæðamál ásamt þjónustu og samskiptum við viðskiptavini okkar.
Við leitumst við að framleiða öruggar vörur á ábyrgan hátt í sátt við samfélagið og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar.
Við bætum okkar ferla, samskipti við hagaðila og þjónustustig með öryggis- umhverfis- gæða- og jafnréttismál að leiðarljósi og viljum vera öruggur og eftirsóttur vinnustaður þar sem allir hafa jöfn tækifæri í starfi óháð kyni.
Útgefið 15.02.2023
Magnús Bollason, framkvæmdastjóri
Jafnlaunastefna
Tempra leggur metnað sinn í að tryggja öllu starfsfólki jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, þannig að launamunur sé ekki til staðar. Umfang jafnlaunastefnunnar tekur til alls starfsfólks Tempru.
Markmið Tempru er að vera eftirsóttur vinnustaður þar sem öllu starfsfólki bjóðast jöfn tækifæri í starfi óháð kyni, uppruna og trúarskoðunum.
Stjórnendur skuldbinda sig því að fara eftir þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda. Tempra hefur skjalfest, innleitt, og heitir að viðhalda og bæta stöðugt virkni jafnlaunakerfis sem uppfyllir kröfur ÍST85:2012 staðalsins
Útgefið 17.07.2024
Magnús Bollason, framkvæmdastjóri
Umhverfisstefna
Tempra framleiðir og selur umbúðir og einangrun úr EPS. Markmið fyrirtækisins er að vera i fararbroddi á sínu sviði hvað varðar öryggis og umhverfismál, þjónustu við viðskiptavini og vörugæði
· Tempra leitast við að starfa með ábyrgum hætti gagnvart umhverfinu og fyrirtækið er þess meðvitað að starfsemin skilur eftir sig umhverfisfótspor.
Tempra vinnur stöðugt að því að koma í veg fyrir mengun og draga markvisst úr áhrifum starfseminnar á innra og ytra umhverfi sitt með vöktun og stýringu á mikilvægum umhverfisþáttum, ábyrgri nýtingu orku og hráefna ásamt ábyrgri endurnýtingu og förgun úrgangs frá starfseminni.
· Tempra hefur umhverfismál í forgrunni við innkaup og val á birgjum og leitast við að lágmarka flutningsáhrif á vöruflutningum til og frá starfseminni.
· Tempra uppfyllir lagalegar kröfur og kröfur starfsleyfis og gengur lengra þar sem því verður við komið.
· Tempra starfar eftir vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO 14001 staðlinum þar sem unnið er með markvissum hætti að stöðugum umbótum með það að markmiði að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar.
· Tempra setur sér umhverfismarkmið og fylgist með árangri í umhverfismálum.
· Tempra stuðlar að því að starfsfólk fyrirtækisins og verktakar, þekki umhverfisstefnuna og taki þátt í að framfylgja henni.
Útgefið 27.06.2022
Magnús Bollason, framkvæmdastjóri
Öryggis og heilsustefna
Starfsemi okkar verður hagað á þann veg að allir sem vinna hjá Tempru njóti öruggs og heilsusamlegs vinnuumhverfis. Við gerum aldrei málamiðlanir um öryggi. Tempra styður við heilsueflingu starfsmanna sinna.
Ábyrgð
Allir hjá Tempru eru ábyrgir fyrir eigin öryggi og fyrir öryggi annarra sem störf þeirra hafa áhrif á. Örugg vinnubrögð eru skilyrði þess að vinna hjá Tempru.
Forysta
Stjórnendur munu ganga á undan með góðu fordæmi og hafa heilsu og öryggi í fyrirrúmi. Sérhver starfsmaður er ábyrgur fyrir eigin heilsu og öryggi. Framganga okkar á að vera öðrum jákvæð fyrirmynd.
Öruggir vinnustaðir og tækjabúnaður
Hvarvetna í fyrirtækinu kappkostum við að bæta sífellt öryggi tækjabúnaðar okkar, vinnuumhverfi og heilsueflingu starfsfólks okkar á vinnustað með því að fá starfsfólk til að taka þátt, þjálfa það á viðeigandi hátt og hvetja það áfram við að þróa menningu heilbrigðis og öryggis innan Tempru.
Að koma auga á hættur og hamla gegn þeim
Allt starfsfólk Tempru tekur virkan þátt í að koma auga á mögulegar hættur. Þær hættur tökum við alvarlega, metum þær, förum með þær sem forgangsatriði og útrýmum þeim þar sem hægt er. Sé ekki hægt að útrýma þeim grípum við til viðeigandi ráðstafana til að hamla gegn þeim. Til að efla frekar andrúmsloft sífelldra framfara hefur starfsfólk okkar aðkomu á öllum stigum ferlisins.
Verktakar og samstarfsfólk
Viðmið okkar og skilyrði um hegðun og frammistöðu á sviði heilsu og öryggis gilda jafnt um verktaka og starfsfólk Tempru. Við tryggjum að verktakar okkar beri skynbragð á kerfi okkar og verklagsreglur og fylgi þeim í hvívetna.
Að læra af reynslunni
Við rannsökum rækilega atvik og hugsanlega hættulega atburði. Við komumst að niðurstöðu um frumorsakir og grípum hratt og örugglega til aðgerða til að koma í veg fyrir endurtekningu. Allir hjá Tempru eru hvattir til að deila góðum starfsháttum, taka þá upp og læra af reynslu annarra.
Eftirlit og endurskoðun
Við höldum áfram þróun kerfa til að mæla frammistöðu og deilum niðurstöðunum með samstarfsaðilum okkar sem munu kappkosta að ýta á jákvæðan hátt undir framfarir.
Með reglulegu millibili gerum við ítarlega úttekt á starfsemi okkar með öryggiskerfi okkar og hegðun í brennipunkti og nýtum þann auð sérþekkingar sem samstæðan og aðilar utan hennar búa yfir. Með því að draga fram dæmi um framúrskarandi árangur og fella þau inn í starfsemi okkar um gjörvalla samstæðuna, kappkostum við að bæta almennt gæði frammistöðunnar í heilsu- og öryggismálum.
Útgefið 03.05.2023
Magnús Bollason, framkvæmdastjóri
Vafrakökustefna (cookie policy)
1. Hvað eru vafrakökur?
Vafrakökur eru agnarsmáar textaskrár sem eru geymdar í vafraranum þínum. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsíðna, til greiningar á notkun vefsíðna og til að beina auglýsingum til ákveðinna hópa eða einstaklinga. Vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.
2. Notkun á kökum
Með því að samþykkja skilmála um notkun á vafrakökum er Tempru m.a. veitt heimild til þess að:
Bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna,
Að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum,
3. Slökkva á notkun á kökum
Notendur geta og er ávallt heimilt að stilla vafrann sinn þannig að notkun á kökum er hætt, þannig að þær vistast ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í heild sinni og getur haft neikvæð áhrif á heildarvirkni.
Leiðbeiningar um hvernig megi slökkva á kökum eða breyta stillingum um vafrakökur má finna á vefsíðu þíns vafra eða www.allaboutcookies.org.


