Lokað í dag vegna sumarleyfa.

EINANGRUN -  UMBÚÐIR

Við höfum haldið fiski köldum

og húsum heitum í 70 ár!

Bæklingur

Tempra ehf er leiðandi í framleiðslu á umbúðum og einangrun úr frauðplasti EPS (Expanded Polystyrene).


Nánari upplýsingar um Tempru

Umbúðir

EPS er grunnhráefnið í umbúðunum

Einangrun

Upplýsingar um helstu notkunarsvið EPS einangrunar á Íslandi

XPS Einangrun

XPS Einangrun þar sem gerðar eru meiri kröfur til raka og þrýstiþols


Hlutverk Tempru


Hlutverk Tempru er framleiðsla og markaðssetning umbúða til flutnings á ferskum matvælum og framleiðsla og markaðssetning einangrunarplasts til byggingarframkvæmda.




70+

Ára reynsla að baki

UM OKKUR

Fagmennska og þjónusta í fyrirrúmi

Hlutverk Tempru er framleiðsla og markaðssetning umbúða til flutnings á ferskum matvælum og framleiðsla og markaðssetning einangrunarplasts til byggingarframkvæmda.

Fréttir &
Tilkynningar

Eftir Björn Sverrisson 18. ágúst 2022
Tempra hefur hlotið ISO 14001 vottun 
Eftir Björn Sverrisson 7. janúar 2022
Yfir 70% af frauðplastkössum eru endurunnir 
Eftir Björn Sverrisson 2. september 2020
Nýr framkvæmdastjóri Tempru ehf. Hafnarfjörður 1. september 2020 Magnús Bollason hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Tempru ehf og hefur hann störf í dag 1. september. Tempra framleiðir umbúðir til flutnings á ferskum matvælum og einangrunarplast til byggingarframkvæmda. Félagið rekur tæknivædda verksmiðju að Íshellu 8 í Hafnarfirði og hjá því starfa um 30 manns. Magnús hefur undanfarin 20 ár starfað hjá Nóa Síríus, síðustu 12 ár sem framkvæmdastjóri framleiðslusviðs. Hann er með MS gráðu í stjórnun og forystu og BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og BS gráðu í iðnaðartæknifræði frá Tækniskóla Íslands. „Tempra er traust og framsækið fyrirtæki sem er þekkt fyrir frábæra þjónustu við viðskiptavini sína, nýsköpun og vörugæði. Það er mjög spennandi og skemmtilegt að hafa fengið tækifæri til að ganga til liðs við þann frábæra hóp starfsfólks sem starfar hjá fyrirtækinu og taka þátt í því að þróa það áfram og efla enn frekar.“ Sagði Magnús er hann mætti til starfa í morgunsárið."
Eftir Björn Sverrisson 29. maí 2020
Hann Villi bílstjóri er engum líkur, fer létt með ýmislegt annað en bara heilu brettin af frauðplastkössum og húsaeinangrun :)
Eftir Björn Sverrisson 26. maí 2020
Á tímum aukinnar vitundarvakningar um umhverfismál er ekki úr vegi að benda á það sem vel er gert. British Plastics Federation (BPF), sem eru elstu atvinnugreinasamtök heims í plastiðnaði, birtu fyrir nokkrum árum áhugavert myndband um lífsferil frauðplastkassa : Myndbandið gefur góða innsýn í hve umhverfisvæn lausn frauðplastkassinn er til flutnings og geymslu á ferskum fiski. Frá því myndbandið var birt, þ.e. sl. 6 ár, hefur sífellt meiri áhersla verið lögð á að þróa tækni til að endurvinna notaða frauðplast-fiskikassa í hráefni til framleiðslu á frauðplastkössum. Með því móti má loka hringnum alveg, þ.e. nýta sama hráefnið aftur og aftur til að framleiða frauðplastkassa í stað þess að framleiða annars konar plasthluti úr endurunnu frauðplasti. Þessi tækni er nú þegar til staðar, sjá t.d. hér : Samtök frauðplastframleiðenda í Evrópu, EUMEPS, hafa gefið út markmið um að árið 2025 verði 50% af öllum fiskikössum endurunnið í PS hráefni, sem nota má til að framleiða fiskikassa úr EPS, sjá hér : Að lokum er vert að benda á frekari upplýsingar um endurvinnslu á plasti: LIFE EPS SURE. EU Project. http://ec.europa.eu/environment/life/project/Projects/index.cfm?fuseaction=search.dspPage&n_proj_id=6184&docType=pdf https://www.intcorecycling.com/How-to-recycle-eps.html https://www.bewisynbra.com/en/solutions/recycling https://www.bpf.co.uk/packaging/recycling.aspx
Eftir Björn Sverrisson 12. nóvember 2019
Fjáröflun björgunarsveita landsins er hluti af því að styrkja og efla starfsemi þessa mikilæga hluta samfélagsins. Tempra lætur ekki sitt eftir liggja og hefur í gegnum tíðina stutt við bakið á björgunarsveitunum með kaupum á Neyðarkallinum. Við óskum björgunarsveitunum góðs gengis í fjáröflun sinni og vonum að sem flestir styðji við bakið á sveitunum.  Hlökkum til að sjá þau aftur að ári enda vinna björgunarsveitirnar ótrúlega flott starf um allt land og eru ávallt til taks þegar á þarf að halda.
Eftir Björn Sverrisson 25. október 2019
Fjárhags- og viðskiptaupplýsingafyrirtækið Creditinfo vinnur árlega ítarlega greiningu á fyrirtækjum skráðum á Íslandi og gefur út lista yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins. Einungis þau fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo, að teknu tilliti til þátta sem varða rekstur þeirra og stöðu, komast á listann. TEMPRA er stolt af því að komast enn og aftur á lista Creditinfo en alls eru 874 fyrirtæki á listanum eða aðeins 2% skráðra fyrirtækja á Íslandi. 
Eftir Björn Sverrisson 6. september 2019
Stöflunarstyrkur allra helstu kassategunda Tempru hefur nú verið mældur í tilraunaaðstöðu Háskóla Íslands. Kössum var komið fyrir á sléttu, láréttu gólfi og þrýst ofan á lok þeirra með jöfnum þrýstingi. Stöflunarstyrkur reyndist að meðaltali vera milli um 5,0 til 8,5 kN, sem jafngildir um 500 til 860 kg þunga. Ef þessar niðurstöður eru bornar saman við þann meðalþunga, sem hvílir á neðstu frauðkössum á fulllestuðu vörubretti, þ.e. um 50 til 190 kg, fæst öryggisstuðull milli 4,2 og 9,9. Þetta þýðir að miðað við þessar bestu mögulegu aðstæður, þ.e. kyrrstæður brettastafli á láréttum fleti, þola frauðplastkassarnir 4,2-9,9 sinnum meiri þunga en þeir verða í raun fyrir. Allar hreyfingar (flutningur) og annað álag, sem kassarnir verða fyrir, hafa vitaskuld áhrif til lækkunar á þessum öruggisstuðlum. Frekar má fræðast um þessa rannsókn í þessari skýrslu eða með því að senda fyrirspurn á Björn Margeirsson rannsóknastjóra Sæplasts/Tempru og dósent við Háskóla Íslands ( bjornm@hi.is ).
Eftir Björn Sverrisson 13. mars 2019
Nánari upplýsingar eru á vef HÍ .
Eftir Björn Sverrisson 9. júlí 2018
Franski matvælaverkfræðineminn Fabien Levray var hjá Tempru í maí og júní til að rannsaka m.a. einangrunargildi frauðkassanna okkar undir handleiðslu Björns Margeirssonar rannsóknastjóra og lektors við Háskóla Íslands. Hann komst m.a. að því að einangrunargildi 3ja kg gatakassa („gámakassa“) er um 7% lægra en einangrunargildi samsvarandi heilla, ógataðra kassa („flugkassa“). Nánari upplýsingar er að finna hér . Efasemdir um ágæti gatakassanna m.v. heilu kassana hafa verið uppi sl. ár, sjá m.a. í tveimur neðangreindum skýrslum Matís:  http://www.matis.is/matis/frettir/nr/3815 http://www.matis.is/media/matis/utgafa/03-17-Effects-of-packaging-solutions.pdf Nánari upplýsingar veitir Björn Margeirsson (bjorn.margeirsson@tempra.is / bjornm@hi.is).