Sökkuleinangrun
Sökkuleinangrun er notuð bæði innan og utan á sökkulveggi þar sem gerðar eru miklar kröfur um þrýstiþol og rakamótstöðu.
- Hefðbundin stærð er 600x3000 mm.
- Rúmþyngdir eru 16 og 24 kg/m3, nema annars sé óskað.
Hafa ber í huga að eftir því sem rúmþyngd einangrunarinnar eykst, því meiri er mótstaða hennar gegn langtímaálagi. Svipað gildir varðandi þykktina, því þykkari sem hún er því meiri einangrun veitir hún.
Einangrun að jörð þarf að þola álag frá byggingum, jarðvegi og grunnvatni. Vegna mikils þrýstiþols hentar einangrunarplast (EPS) vel á sökkulveggi og undir gólfplötur. Sé fyllt utan með einangrunina með möl, þjónar hún sem dren og óþarfi er að nota viðbótardren á borð við takkadúk.
Algengustu þykktir
| Þykkt | Stærð | Vörunúmer |
|---|---|---|
| 50 | 600x3000 | 2000802050 |
| 75 | 600x3000 | 2000802075 |
| 100 | 600x3000 | 2000802100 |
| Rúmþyngd kg/m3 | Leiðnitala W/mk | Þrýstiþol kPa mv. 10% samþjöppun |
|---|---|---|
| 16 | 0,040 | 80 |
| 24 | 0,036 | 140 |


