Þakeinangrun er notuð ofan á flöt þök, með miklar kröfur til þrýstiþols, góðrar rakamótstöðu og hás einangrunargildis.

  • Sniðskorin EPS-einangrun á flöt þök undir þakdúka og þakpappa.
  • Algengast er að nota 16 kg/m³ rúmþyngd í neðra lagið.
  • Algengast er að nota 24 kg/m3 í jafnþykkum plötum í efra lagið.
  • Rúmþyngdir eru 16 og 24 kg/m3, nema annars sé óskað.

Sniðskurðurinn er yfir skammhlið plötunnar. Þegar pantað er þarf að gefa upp hallann sem óskað er eftir ásamt mestu þykkt þykkustu plötunnar, eða mestu og minnstu þykkt sniðskorna þakflatarins.

Algengustu þykktir

Þykkt Stærð Vörunúmer
50 600x3000 2000802050
75 600x3000 2000802075
100 600x3000 2000802100
Rúmþyngd kg/m3 Leiðnitala W/mk Þrýstiþol kPa mv. 10% samþjöppun
16 0,040 80
24 0,036 140