Kubbahús

Thermomur® er snjöll alhliða lausn sem byggingarkerfi fyrir sökkla, útveggi íbúðarhúsa, burðarveggi bæði ofan og neðan jarðar, sumarhús, atvinnuhúsnæði og bílskúra.

thermomur® veggir

Thermomur® byggingarkerfi er heilstæð og einföld  lausn fyrir byggingariðnaðinn

Yfir 40 ára reynsla í Skandinavíu af notkun Thermomur® byggingarkerfi

Stuttur byggingartími

Útveggir eru byggðir á mettíma

Sterkir og endingargóðir útveggir

Útveggir með EPS-einangrun og kjarna úr steypu

Góð einangrun

 Thermomur® einangrar bæði að innan og utan, því er engin kuldabrú og lægri hitunarkostnaður

Engar þungar lyftingar

Auðvelt er að vinna með Thermomur® sem bætir og einfaldar vinnuumhverfið

Léttar byggingaeiningar úr EPS

Thermomur® frá BEWI er kerfi sem byggir á einangrunareiningum úr EPS, sem eru styrktar með járnum og fylltar með steypu. Útkoman er útveggur með tvöfaldri einangrun sem útilokar kuldabrýr og lágmarkar orkunotkun húsnæðis. Kerfið er þróað í samstarfi við smiði og verktaka.

Á hverju ári eru byggðir um 300.000 fermetrar af útveggjum úr Thermomur®, sem hentar jafnt í íbúðarhús, bílskúra, sumarhús og sundlaugar, ýmiskonar atvinnuhúsnæði.


Í vörulínu BEWI vegur þyngsta Thermomur® einingin aðeins 4 kg. Þetta bætir vinnuvistfræði til muna í geira þar sem þungar lyftingar eru algengar.


Einföld samsetning og léttar einingar auðveldar og dregur úr líkamlegu álagi við alla vinnu samanborið við aðra byggingarhætti og tryggir að endanlegt verð húsnæðisins sé fyllilega samkeppnishæft.

Stuttur byggingartími

Einfalt í vinnslu – sparar tíma og viðhald Thermomur® er auðvelt í uppsetningu og sparar tíma bæði í byggingu og viðhaldi. Útveggjum má raða upp, stífa og steypa á nokkrum dögum, og klára allan vinnsluferil utanhúss (veðrunarkápu) á þremur vikum.

Þar sem efnið er ólífrænt og óháð raka er hægt að byggja við hvaða veðurskilyrði sem er, jafnvel í frosti yfir vetrarmánuðina. Engin sérhæfð verkfæri þarf til verksins; auðvelt er að sníða einingarnar til með einföldum skurðarverkfærum, svo sem hitaþræði eða hitahníf.

Thermomur® er hannað til að uppfylla allar byggingarþarfir og er fáanlegt í mismunandi útfærslum

  • Thermomur® 350, 350 Super, 350HD og 450: Öflugar einingar fyrir burðarveggi og stöðugleika, bæði ofan og neðan jarðar. Henta í einbýlishús, raðhús, fjölbýli, hótel, skrifstofur og iðnaðarhúsnæði.
  • Thermomur® 250X: Með innsteyptar plastfestingum sem auðvelda skrúfun. Hentar í bílskúrsveggi með jarðvegsfyllingu, burðarveggi og veggi milli íbúða.
  • Thermomur® 200: Minnsta einingin í línunni. Hentar vel í innveggi, skilveggi, bílskúra og geymslur þar sem kröfur um einangrun eru minni.


Kerfið hefur verið eldvarnarprófað, samkvæmt SP Fire 105 og K1 10 / B,s1-d0 (áður flokkur 1 klæðning), og hljóðeinangrun prófuð og staðfest.


Dæmi um hús, sem var byggt úr Thermomur® frá BEWI


  • Thermomur® 350 var notaður í útveggi og flesta veggi.
  • Thermomur® 250X: var notaður á aðra innveggi.