Step hljóðeinangrun
BEWI Step hljóðvistaplötur henta vel fyrir íbúðarhús og verkefni þar sem krafist er góðrar hljóðeinangrunar og hlljóðvistar.

BEWI Step hljóðvistaplöturnar eru fljótlegar og einfaldar í uppsetningu


thermomur® veggir
Thermomur® byggingarkerfi er heilstæð og einföld lausn fyrir byggingariðnaðinn
BEWI hljóðvistarplötur koma í rúllu sem auðvelt er að rúlla út beint ofan á steypu, undir gólfhiti og flot. Innbyggt límband gerir alla samsetningu hraða, fljótlega og þægilega. Hægt er að fá plöturnar í 20, 30 og 40mm þykkt.
Ávinningur af því að nota BEVI Step
hljóðvistarplötur
Léttar byggingaeiningar úr EPS
Thermomur® frá BEWI er kerfi sem byggir á einangrunareiningum úr EPS, sem eru styrktar með járnum og fylltar með steypu. Útkoman er útveggur með tvöfaldri einangrun sem útilokar kuldabrýr og lágmarkar orkunotkun húsnæðis. Kerfið er þróað í samstarfi við smiði og verktaka.
Á hverju ári eru byggðir um 300.000 fermetrar af útveggjum úr Thermomur®, sem hentar jafnt í íbúðarhús, bílskúra, sumarhús og sundlaugar, ýmiskonar atvinnuhúsnæði.
Í vörulínu BEWI vegur þyngsta Thermomur® einingin aðeins 4 kg. Þetta bætir vinnuvistfræði til muna í geira þar sem þungar lyftingar eru algengar.
Einföld samsetning og léttar einingar auðveldar og dregur úr líkamlegu álagi við alla vinnu samanborið við aðra byggingarhætti og tryggir að endanlegt verð húsnæðisins sé fyllilega samkeppnishæft.
Stuttur byggingartími
Einfalt í vinnslu – sparar tíma og viðhald Thermomur® er auðvelt í uppsetningu og sparar tíma bæði í byggingu og viðhaldi. Útveggjum má raða upp, stífa og steypa á nokkrum dögum, og klára allan vinnsluferil utanhúss (veðrunarkápu) á þremur vikum.
Þar sem efnið er ólífrænt og óháð raka er hægt að byggja við hvaða veðurskilyrði sem er, jafnvel í frosti yfir vetrarmánuðina. Engin sérhæfð verkfæri þarf til verksins; auðvelt er að sníða einingarnar til með einföldum skurðarverkfærum, svo sem hitaþræði eða hitahníf.
Thermomur® er hannað til að uppfylla allar byggingarþarfir og er fáanlegt í mismunandi útfærslum
- Thermomur® 350, 350 Super, 350HD og 450: Öflugar einingar fyrir burðarveggi og stöðugleika, bæði ofan og neðan jarðar. Henta í einbýlishús, raðhús, fjölbýli, hótel, skrifstofur og iðnaðarhúsnæði.
- Thermomur® 250X: Með innsteyptar plastfestingum sem auðvelda skrúfun. Hentar í bílskúrsveggi með jarðvegsfyllingu, burðarveggi og veggi milli íbúða.
- Thermomur® 200: Minnsta einingin í línunni. Hentar vel í innveggi, skilveggi, bílskúra og geymslur þar sem kröfur um einangrun eru minni.
Kerfið hefur verið eldvarnarprófað, samkvæmt SP Fire 105 og K1 10 / B,s1-d0 (áður flokkur 1 klæðning), og hljóðeinangrun prófuð og staðfest.
Dæmi um hús, sem var byggt úr Thermomur® frá BEWI
- Thermomur® 350 var notaður í útveggi og flesta veggi.
- Thermomur® 250X: var notaður á aðra innveggi.


