Thermodren® einangrun
Thermodren® er sterk og þétt einangrunarplata sem andar. Tilvalin til notkunar sem einangrun og dren á kjallaraveggjum. Ávinningurinn er þurr og hlýr kjallari og aukin loftgæði.

Með því að nota Thermodren® einangrunarplötu á kjallaraveggi og fyrir dren, tryggir þú jafnt hitastig í múrnum og kemur í veg fyrir raka og slæm loftgæði

thermomur® veggir
Thermomur® byggingarkerfi er heilstæð og einföld lausn fyrir byggingariðnaðinn
Thermodren® er framleitt úr þrýstiþolnu Jackopor® 70 EPS-efni
Platan er með láréttum og lóðréttum opum sem tryggja að kjallaraveggurinn þorni og skapi afrennsli fyrir raka og vatn. Ávinningurinn er þurr og hlýr kjallari, heilbrigt inniloft og aukin búsetugæði.
Thermodren® er fáanlegt í 100 mm og 200 mm þykktum. Hægt er að setja plöturnar upp bæði lárétt og lóðrétt, svo að afskurður nýtist áfram við uppsetninguna og hægt er að aðlaga hæðina eins og hentar. Þetta lágmarkar afskurð og sóun, sem hefur jákvæð áhrif á umhverfið og kostnað.
Jarðvegsdúkur (trefjadúkur) í notkunarflokki N2 kemur í veg fyrir að fínkornóttur jarðvegur stífli afrennsli Thermodren® plötu. Dúkurinn er afhentur annað hvort álímdur eða í rúllu. Sérhannaðir fylgihlutir, eins og stýritappar, festitappar, millistykkis- og endalistar, tryggja skilvirka og rétta uppsetningu.
Myndband sem sýnir hvernig Thermodren® er notað í kjalla á eldra einbýlishúsi með rakavandamál
Myndband sem sýnir hvernig Thermodren® er notað í kjalla á eldra einbýlishúsi með rakavandamál.
Thermodren® er einkaleyfisvarið og þróað sérstaklega fyrir norrænar aðstæður.
Hvernig má forðast raka í kjallaraveggjum
Grunnur eða kjallari húsa er sérstaklega útsettur fyrir skemmdum og getur verið hrár, rakur og óvistlegur, sem skapar þessa dæmigerðu "kjallaralykt".
Orsakir raka geta verið nokkrar, eins og lélegt afrennsli (dreni) þannig að vatn úr jarðveginum kemst inn í bygginguna, eða röng einangrun, eins og ef kjallaraveggur er áfram kaldur og mætir hlýju inniloft og þéttist innan á veggnum.
Raki skapar kjöraðstæður fyrir myglusvepp til að dreifa sér, sem getur leitt til vandamála eins og rakaskemmda, fúa, vondrar lyktar, ofnæmisviðbragða og annarra heilsufarsvanda, auk þess sem kyndingarkostnaður eykst.
Ávinningur af því að nota
Thermodren®
Léttar byggingaeiningar úr EPS
Thermomur® frá BEWI er kerfi sem byggir á einangrunareiningum úr EPS, sem eru styrktar með járnum og fylltar með steypu. Útkoman er útveggur með tvöfaldri einangrun sem útilokar kuldabrýr og lágmarkar orkunotkun húsnæðis. Kerfið er þróað í samstarfi við smiði og verktaka.
Á hverju ári eru byggðir um 300.000 fermetrar af útveggjum úr Thermomur®, sem hentar jafnt í íbúðarhús, bílskúra, sumarhús og sundlaugar, ýmiskonar atvinnuhúsnæði.
Í vörulínu BEWI vegur þyngsta Thermomur® einingin aðeins 4 kg. Þetta bætir vinnuvistfræði til muna í geira þar sem þungar lyftingar eru algengar.
Einföld samsetning og léttar einingar auðveldar og dregur úr líkamlegu álagi við alla vinnu samanborið við aðra byggingarhætti og tryggir að endanlegt verð húsnæðisins sé fyllilega samkeppnishæft.
Stuttur byggingartími
Einfalt í vinnslu – sparar tíma og viðhald Thermomur® er auðvelt í uppsetningu og sparar tíma bæði í byggingu og viðhaldi. Útveggjum má raða upp, stífa og steypa á nokkrum dögum, og klára allan vinnsluferil utanhúss (veðrunarkápu) á þremur vikum.
Þar sem efnið er ólífrænt og óháð raka er hægt að byggja við hvaða veðurskilyrði sem er, jafnvel í frosti yfir vetrarmánuðina. Engin sérhæfð verkfæri þarf til verksins; auðvelt er að sníða einingarnar til með einföldum skurðarverkfærum, svo sem hitaþræði eða hitahníf.
Thermomur® er hannað til að uppfylla allar byggingarþarfir og er fáanlegt í mismunandi útfærslum
- Thermomur® 350, 350 Super, 350HD og 450: Öflugar einingar fyrir burðarveggi og stöðugleika, bæði ofan og neðan jarðar. Henta í einbýlishús, raðhús, fjölbýli, hótel, skrifstofur og iðnaðarhúsnæði.
- Thermomur® 250X: Með innsteyptar plastfestingum sem auðvelda skrúfun. Hentar í bílskúrsveggi með jarðvegsfyllingu, burðarveggi og veggi milli íbúða.
- Thermomur® 200: Minnsta einingin í línunni. Hentar vel í innveggi, skilveggi, bílskúra og geymslur þar sem kröfur um einangrun eru minni.
Kerfið hefur verið eldvarnarprófað, samkvæmt SP Fire 105 og K1 10 / B,s1-d0 (áður flokkur 1 klæðning), og hljóðeinangrun prófuð og staðfest.
Dæmi um hús, sem var byggt úr Thermomur® frá BEWI
- Thermomur® 350 var notaður í útveggi og flesta veggi.
- Thermomur® 250X: var notaður á aðra innveggi.


