Notkun
Þar sem EPS plast er um 98% loft og einungis 2% plast eru EPS umbúðir ákaflega léttar miðað við það rúmmál eða þyngd sem þeim er ætlað að halda.
Notkun
Umbúðirnar eru ákaflega einangrandi og halda köldu eða heitu við kjörhitastig mun lengur en t.d. pappaumbúðir. Þær eru vatnsþéttar og hvítur litur þeirra hrindir frá sér varmageislum sem ella gætu hitað innihald þeirra óþarflega.Þar sem EPS plast er eins og áður sagði 98% loft og einungis 2% plast eru EPS umbúðir ákaflega léttar miðað við það rúmmál eða þyngd sem þeim er ætlað að halda.
- Þær eru ákaflega einangrandi og halda köldu, eða heitu við kjörhitastig mun lengur en til dæmis pappaumbúðir.
- Þær eru vatnsþéttar og hvítur litur þeirra hrindir frá sér varmageislum sem annars gæti hitað innihald þeirra óþarflega.
- Hvítur litur er til bóta þegar unnið með matvæli þar sem auðveldara er að greina óhreinindi á hvítu yfirborði en dökku.
EPS umbúðir eru líka ákaflega sterkar miðað við þyngd, sem er sérstaklega til bóta ef flytja þarf t.d. vöru með flugi. EPS umbúðir eru einnig í flestum tilfellum einnota þ.a. ekki þarf að nota kemísk efni til að hreinsa þær aftur.
Helstu notkunarsvið EPS umbúða eru eftirfarandi:
- Fiskikassar, (heill og hausaður lax, silungur, þorskur, steinbítur og fleira)
- Flakassar, (fiskflök almennt.)
- Kjökassar, (heilir og hálfir skrokkar, lambakjöt, nautakjöt og fleira)
- Grænmetiskassar, (gúrkur, tómatar, nýjar kartölfur, kál og fleira)
Áprentun
Allir kassar frá Tempru bjóðast áprentaðir, t.d. með logoi viðskiptavina eða kaupenda erlendis. Kostnaður er háður magni og fjölda lita hverju sinni. Tempra annast ekki lagerhald á áprentuðum umbúðum nema um það sé samið. Hafið samband við sölumann ef frekari upplýsinga er óskað.


